Fréttir
01.10.2005 Viñas del Vero Tinto Cabernet Sauvignon / Merlot aftur fáanlegt í Vínbúðum
 
Viñas del Vero Tinto er nú aftur fáanlegt í Vínbúðum Ríkisins eftir nokkra fjarveru. Umbúðum og innihaldi hefur verið breytt talsvert til að mæta nýjum tímum en mörgum þóttu gömlu umbúðirnar gamaldags, ef ekki hreinlega ljótar.

Í fréttatilkynningu Viñas del Vero, sem var fyrsti birgi Bers og því sögufrægt fyrirtæki, kemur fram að með þessum nýja Tinto sé verið að auka gæðin og gera vínið nútímalegra í útliti og stíl.
Þeir sem hafa hug á eldri gerðinni geta haft samband við Ber, t.d. gegnum hl@Ber.is, en nokkrir kassar eru enn til.


 Veldu síðu: <<  Til baka  68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78  Næsta síða  >>