| Vinsældir Gran Vos hafa aukizt jafnt og þétt enda stórgott vín. Sala í sérverzlunum ÁTVR, Heiðrúnu og Kringlu, hefur náð því marki að vínið komist í kjarna.
Þar með verður Gran Vos fáanlegt í Hafnarfirði, Kópavogi(Quelle og Smáralind), Eiðistorgi og Akureyri auk sérverzlananna tveggja.
Það vill skemmtilega til að Gran Vos detti inn í kjarna á þessum árstíma því hér er á ferðinni ekta villbráðar- og stórsteikavín.
Vínið á myndinni með Gran Vos er hvítvínið Clarion, sem m.a. var valið hvítvín ársins á Spáni árið 2000.
|