Fréttir
20.09.2004 Pedrosa snýr aftur
 
Viña Pedrosa Crianza og Viña Pedrosa Gran Reserva snúa aftur á hillur sérbúða ÁTVR.

Viña Pedrosa Crianza og Viña Pedrosa Gran Reserva fengust áður fyrr í sérbúðum ÁTVR.

Þæru stöllur urðu mörgum harmdauði þegar þær féllu úr sölu eftir breytingu á innkaupareglum ÁTVR.

Nú bjóðast þessi eðalvín aftur og ekki af dónalegum árgöngum, Crianza 1999 og Gran Reserva 1995. Bæði árin 1995 og 1999 eru flokkuð sem frábær (sp. excelente) í héraðinu Ribera del Duero, sem af mörgum er talið merkasta rauðvínshérað Spánar.


 Veldu síðu: <<  Til baka  81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91  Næsta síða  >>