| Viñas del Vero, helzti vínframleiðandi héraðsins Somontano á Spáni, náði nýlega samningum við Iberia, aðalflugfélag Spánar, um sölu á hálfri milljón flaskna (750ml og 187.5ml) af víni í flugvélum fyrirtækisins.
Boðið verður upp á Viñas del Vero Merlot Colección 2001 og VdV Chardonnay 2003 á viðskipta- og fyrsta farrými.
Chardonnay 2003 mun líka fást á almennu farrými auk VdV Crianza 2001.
Bæði árin 2001 og 2003 voru frábær (sp. excelente) í Somontano.
Viñas del Vero, sem er ein fullkomnasta víngerð Spánar, hefur fjárfest í sérstakri áfyllingarlínu til að auka sveigjanleika í viðskiptum við þessa tegund kaupenda.
VdV hefur nokkra reynslu af sölu til stóru flugfélaganna, m.a. Lufthansa, Cross Air og SAS.
|